Útlánareglur:
- Lánþegi skal framvísa bókasafnsskírteini sínu í hvert sinn sem safnefni er fengið að láni.
- Lánþegi (eða ábyrgðarmaður barns) ber fulla ábyrgð á því safnefni sem tekið er að láni á hans nafni.
- Lánstími bóka er 4 vikur en 2 vikur ef bókin er merkt skammtímaláni.
- Lánstími á nýjustu tímaritunum er 1 vika.
- Sé safngögnum ekki skilað á réttum tíma skal lánþegi greiða sekt skv. gjaldskrá.
- Glatist bók eða annað efni í vörslu lánþega greiðir hann andvirði þess.
Skírteinin gilda í 1 ár og því þarf að endurnýja þau á hverju ári.
Vinsamlegast athugið!
Sjái lánþegi fram á að hann muni ekki getað skilað safngögnum á réttum tíma, þá getur hann framlengt útlánin með því að:
- Skrá sig inn á gegnir.is eða leitir.is (Ef lykilorð hefur glatast þá vinsamlegast hafið samband við bókasafnið)
- Haft samband með einu símtali (480 6628)
- Sent póst á netfangið bokasafn@fludir.is
Gjaldskrá:
- Vanskil reiknast eftir síðasta skiladag:
20,- krónur pr. bók og önnur safngögn - Útprentun úr tölvu kr. 30,-
- Ljósrit A4 svart/hvítt kr. 25,-
- Ljórit A3 svart/hvítt kr. 30,-
- Ljósrit A3 í lit kr. 100,-
- Internet 1/2 klst. kr. 150,-
- Millisafnalán frá söfnum utan svæðis kr. 1.000,- auk sendingarkostnaðs.
Þjónusta:
- Aðgangur að tölvu tengdri Internetinu gegn vægu gjaldi (skv. gjaldskrá)
- Skilalúga við útidyr bókasafnsins. Lánþegar geta alltaf skilað safngögnum þegar þeir eiga leið um.