Allir lesa – Landsleikur í lestri

13 jan

Allirlesa2016

Það verður blásið til leiks í landsleiknum Allir lesa á bóndadaginn, 22. janúar næstkomandi. Leikurinn verður með sama sniði og síðast, hann stendur í mánuð (lýkur á konudaginn 21. febrúar) og er fyrir lesendur á öllum aldri.

Það verður opnað fyrir skráningu liða núna á föstudaginn, 15. janúar. Eins og síðast geta hvers konar lið tekið þátt – vinnustaðalið, fjölskyldur, vinahópar, leshringir, skólahópar o.s.frv. Við vekjum sérstaka athygli á því að foreldrar / forráðamenn / afar og ömmur sem lesa með börnum geta myndað fjölskyldulið og skráð lestur með barninu. Sá lestur skráist þá á þann sem les og þann sem lesið er fyrir.

Sjá nánari upplýsingar á vefnum http://allirlesa.is/
Einnig á facebook: https://www.facebook.com/allirlesa/?fref=ts

Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO standa saman að Allir lesa.

Vertu með! – Lestur gerir lífið svo miklu skemmtilegra!