Gjafir

14 okt

Bókasafn Hrunamanna hefur verið svo lánsamt að eiga að velunnara sem fært hafa safninu gjafir sem styrkja safnkostinn (í samræmi við aðfangastefnu).

Safnið sendir kærar þakkir fyrir góðar gjafir og vonar að viðtekið efni nýtist gestum sem allra best.

Á dögunum færði Dísa frá Hruna safninu viðtal við Guðjón Bjarnason frá Hruna, það er á tveimur diskum og er áhugasömum velkomið að kíkja við eða hafa samband.